
Dagskrá:
Föstudagur 12. ágúst
Dvalarheimilið Hornbrekka kl. 11.00
Krílasálmar.
Tónlistar- og samverustund heimilisfólks á Hornbrekku og foreldra og barna á 1. ári undir leiðsögn Diljár Sigursveinsdóttur.
Allir velkomnir.

Ólafsfjarðarkirkja kl. 20:30
Upphafstónleikar Berjadaga
„Sigursveinn D. Kristinsson og Franz Schubert“

Flytjendur: Sigrún Valgerður Gestsdóttir, sópran, Ágúst Ólafsson bariton og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari.
Auk þess að flytja sönglög Sigursveins, sem hefði orðið 100 ára á þessu ári, verður í stuttum samlestrum sagt frá uppvaxtarárum í Ólafsfirði, þ.m.t. félagsstörfum og framleiðslu hans á listmunum, frá starfi hans á Siglufirði á 6. og 7. áratugnum og loks af framlagi hans til jafnréttismála og menningar. Í tengslum við tónleikana verður efnt til sýningar á listmunum og málverkum eftir Sigursveinn og Ólöfu Þorláksdóttur (Grímu)
eiginkonu hans, en um list Grímu má lesa í bókinni Einfarar í íslenskri myndlist eftir Aðalstein Ingólfsson.
Síðari hluti tónleikanna verður í höndum Ágústar Ólafssonar og Ástríðar Öldu Sigurðardóttur og tileinkaður söngvaskáldinu Franz Schubert, en Ágúst hlaut nýlega verðlaun fyrir túlkun sína á verkum meistarans.
Laugardagur 13. ágúst
Listamenn bæjarins opna vinnustofur sínar frá kl. 14 - 16:30.
Garún, vinnustofa Aðalgötu gegnt apótekinu
Hófí, vinnustofa Burstabrekkueyri
Kristjana, Rut og Magnús, Litla vinnust. v/Ægisgötu
Allir velkomnir
Ólafsfjarðarkirkja kl. 17 Kammerkórinn Hymnodia flytur eftirlætisperlur undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar

Sunnudagur 14. ágúst
Hornbrekka kl. 16 Síðdegisstund með listafólki Berjadaga.
Tjarnarborg kl. 20:30
Tenórinn ræskir sig – enn á ný!

Mánudagur 15. ágúst
Aukasýning á Tenórnum kl. 20:30
Átta ár eru liðin frá því að leikritið TENÓRINN var frumsýnt á Berjadögum. Nánar tiltekið í ágúst 2003.
SÝNINGIN HEFUR farið víða á þessum árum og allstaðar átt góðu gengi að fagna. En nú hefur söngvarinn ákveðið að dusta rykið af raddböndunum og undirleikaranum og efna til sýningar á Berjadögum 2011.
Höfundur: Guðmundur Ólafsson, l
eikstjóri: Oddur Bjarni Þorkelsson, t
enórinn: Guðmundur Ólafsson, undirleikarinn: Sigursveinn Kr. Magnússon
Umsagnir um Tenórinn:
“Frábært verk, frábær sýning!”
“Besta íslenska sýningin sem ég hef séð um árabil.”
“Texti Guðmundar er hreint út sagt frábær.”
Stefán Sturla Sigurjónsson, Rás tvö
“Það er skemmst frá því að segja að Tenórinn er ein sú besta skemmtun í leik og söng sem gagnrýnandi minnist að hafa séð. Tenór Guðmundar er stórkostlegur hvort sem hann er að gaspra um eigin frægð og frama eða í kvíðaköstum vegna yfirvofandi tónleika. Hann er óborganlega fyndinn og syngur hreint dásamlega, en á samt þann viðkvæma streng einmanaleika og trega sem verður ansi sár þegar á móti blæs.”
Bergþóra Jónsdóttir Mbl
“Leikstjórinn, Oddur Bjarni Þorkelsson, hefur líka unnið gott starf og mótað flæði sýningarinnar vel.”
“Sigursveinn Magnússon er píanóleikarinn og skilaði hlutverki sínu af hófstilltu öryggi, og átti sinn ísmeygilega þátt í fyndninni. Samleikur þeirra er áreynslulaus …”
Þorgeir Tryggvason, Mbl.
“Tenórinn er bráðskemmtilegt og vel smíðað leikverk og flutningur Guðmundar skemmtilegur, margslunginn og öruggur.”
Halla Sverrisdóttir DV
Listamenn Berjadaga 2011:
Ágúst Ólafsson söngur, Ástríður Alda Sigurðardóttir píanó, Sigrún Valgerður Gestsdóttir sópran, Kammerkórinn Hymnodia, Eyþór Ingi Jónsson kórstjóri, Sigursveinn Magnússon tónlistarmaður, Guðmundur Ólafsson leikari og tenór og Diljá Sigursveinsdóttir fiðluleikari og liststjórnandi.

