
Dagskrá:
Föstudagur 17. ágúst
Dvalarheimilið Hornbrekka kl. 11.00
Hátíðin hefst föstudagsmorguninn 17. ágúst kl. 11 á Dvalarheimilinu Hornbrekku með því að kynslóðir mætast, börn af leikskólum í Fjallabyggð munu syngja lög Ómars Ragnarssonar undir yfirskriftinni „Skemmtileg lög og vísur“. Ballettflokkur úr listdansskóla Íslands mun flytja dansatriði.
Allir velkomnir.
Ólafsfjarðarkirkja kl. 20:30
Upphafstónleikar Berjadaga
Upphafstónleikar föstudagskvöldið 17. ágúst kl. 20 í Ólafsfjarðarkirkju. Yfirskrift: „Þjóðarrómantík“. Flutt verða 2 öndvegis kammerverk; Alexander Borodin: Strengjakvartett nr. 2 (1881) og Antonin Dvorák: Píanótríó nr. 4 í e-moll, Dumky.
Flytjendur: Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla, Ólöf Sigursveinsdóttir selló, Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanó.
Laugardagur 18. ágúst
Konur og tónlist
Listamenn bæjarins opna vinnustofur sínar frá kl. 14 - 16:30.
Garún, vinnustofa Aðalgötu gegnt apótekinu
Hófí, vinnustofa Burstabrekkueyri
Kristjana, Rut og Magnús, Litla vinnust. v/Ægisgötu
Allir velkomnir
Sunnudagur 19. ágúst
Kl. 14 verður tónlistarmessa í Ólafsfjarðarkirkju, þar sem tónlistarfrlutningur verður í höndum Berjadagafólks.
kl. 17 verður sídegisstund á dvalarheimilinu Hornbrekku.
Kl. 20 Sameina allir krafta sína og slá á létta strengi í Félagsheimilinu Tjarnarborg.
Alls er gert ráð fyrir að a.m.k. 18 hljóðfæraleikarar og söngvarar komi fram á hátíðinni.
Listamenn Berjadaga 2012:
Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari, Ingibjörg Guðlaugsdóttir tónskáld og básúnuleikari, Margrét Hrafnsdóttir söngkona, Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Guðbjörg Guðmundsdóttir fiðluleikari, Þórarinn Már Baldursson víóluleikari, Sigursveinn Magnússon tónlistarmaður, Sigrún Valgerður Gestsdóttir söngkona, Guðmundur Ólafsson sjónleikari og tenór og Diljá Sigursveinsdóttir söngkona, fiðluleikari og listrænn stjórnandi hátíðarinnar.
A.m.k. 18 hljóðfæraleikarar, söngvarar og dansarar munu koma fram á hátíðinni.

